Læt hér flakka grein sem kemur í Sunnlenska fréttablaðið og Moggann...
Bridgehátíð Landmannahellis fór fram í sjöunda skiptið síðustu helgina í ágúst. Holtamaðurinn Ómar Olgeirsson byrjaði að safna saman nokkrum bridgefélögum árið 2001 í bridge og útiveru í fjölbreyttu landslagi. Mótið hefur orðið veglegra með hverju árinu og er matseðillinn hjá Ísaki Erni Sigurðssyni er orðinn frægur meðal bridsara víðs vegar af landinu og víðar. Yfirleitt hafa 10-16 spilarar tekið þátt en nú í ár mættu 24 spilarar til leiks og þurfti í fyrsta skipti 2 veiðihús undir mannskapinn. Fjórir sterkir spilarar frá Danmörku mættu en tveir af þeim voru í landsliði Dana sem varð í 2.sæti á Norðurlandamótinu í sumar. Þeir voru hæstánægðir með ferðina og skráðu sig strax í mótið 2008! Veitt eru ýmis verðlaun fyrir utan bridgemótið sjálft, m.a. fyrir 3 bestu veiðimennina en þess má geta að veiðimaður ársins, Rúnar Gunnarsson, veiddi 26 silunga, flesta í Ljótapolli. Danirnir skildu ekki mikið í nafngiftinni á Ljótipolli(d. Grimmevand, e. Uglypit). Sigurður Sverrisson sigraði í bridgemótinu, Aron Þorfinnsson varð annar og Júlíus Sigurjónsson þriðji. Hæsti Daninn náði 6.sæti en Danirnir munu án efa gera betur á næsta ári þegar búnir að venjast spilastíl Íslendinga!
Hér má sjá lokastöðuna:
| 1
| Sigurður Sverrisson
| 86
|
| 2
| Aron Þorfinnsson
| 79
|
| 3
| Júlíus Sigurjónsson
| 54
|
| 4
| Rúnar Gunnarsson
| 33
|
| 5
| Kjartan Ásmundsson
| 26
|
| 6
| Michael Askgaard
| 24
|
| 7
| Ómar Olgeirsson
| 22
|
| 8
| Gregers Bjarnarson
| 19
|
| 9
| Rúnar Magnússon
| 19
|
| 10
| Mikkel Larsen
| 14
|
| 11
| Frímann Stefánsson
| 14
|
| 12
| Þorlákur Jónsson
| 13
|
| 13
| Skúli Skúlason
| 13
|
| 14
| Þröstur Ingimarsson
| 12
|
| 15
| Rúnar Einarsson
| 1
|
| 16
| Jóhann Sigurðarson
| -9
|
| 17
| Kasper Konow
| -24
|
| 18
| Kristinn Þórisson
| -32
|
| 19
| Ísak Örn Sigurðsson
| -34
|
| 20
| Daníel Már Sigurðsson
| -36
|
| 21
| Hlynur Garðarsson
| -36
|
| 22
| Páll Þórsson
| -69
|
| 23
| Stefán Jónsson
| -78
|
| 24
| Ómar Freyr Ómarsson
| -93 |
Ýmis aukaverðlaun
Veiðimaður ársins : Rúnar Gunnarsson
2. sæti í veiði : Þröstur Ingimarsson
3.sæti í veiði : Hlynur Garðarsson
Hösslari ársins : Daníel Már Sigursson (fyrir hösslið árið 2001!!)
Mestu framfarir : Aron Þorfinsson(2.sæti)
Mesti drykkjuboltinn : Kjartan Ásmundsson
Nýliði ársins : Júlíus Sigurjónsson
Óheppnasti spilarinn : Kasper Konow (Danmerkur-og Bridgehátíðarmeistari)
Besti hjálparkokkurinn : Skúli Skúlason(eftir harða keppni frá Stefáni Jónssyni)
Mesta Comebackið : Gregers Bjarnarson landsliðsmaður Dana(var neðstur með -84 eftir fyrri dag, endaði í +19!)
Bestu tilþrifin : Daníel Már Sigurðsson(kastaði önglinum út, í sjálfan sig og datt í vatnið!)
Den bedste danske spiller: Michael Askgaard 6.sæti í heildina
Rúnarsverðlaunin : Rúnar Gunnarsson 4.sæti
Á næsta ári verður bætt við "Gítarleikari ársins" og e.t.v. fleiri verðlaun, hugmyndir vel þegnar.