Omar 的个人资料MSN-space Ómars照片日志列表 工具 帮助
8月30日

Sterkt alþjóðlegt bridgemót í Landmannahelli

Læt hér flakka grein sem kemur í Sunnlenska fréttablaðið og Moggann...

Bridgehátíð Landmannahellis fór fram í sjöunda skiptið síðustu helgina í ágúst. Holtamaðurinn Ómar Olgeirsson byrjaði að safna saman nokkrum bridgefélögum árið 2001 í bridge og útiveru í fjölbreyttu landslagi. Mótið hefur orðið veglegra með hverju árinu og er matseðillinn hjá Ísaki Erni Sigurðssyni er orðinn frægur meðal bridsara víðs vegar af landinu og víðar. Yfirleitt hafa 10-16 spilarar tekið þátt en nú í ár mættu 24 spilarar til leiks og þurfti í fyrsta skipti 2 veiðihús undir mannskapinn. Fjórir sterkir spilarar frá Danmörku mættu en tveir af þeim voru í landsliði Dana sem varð í 2.sæti á Norðurlandamótinu í sumar. Þeir voru hæstánægðir með ferðina og skráðu sig strax í mótið 2008! Veitt eru ýmis verðlaun fyrir utan bridgemótið sjálft, m.a. fyrir 3 bestu veiðimennina en þess má geta að veiðimaður ársins, Rúnar Gunnarsson,  veiddi 26 silunga, flesta í Ljótapolli. Danirnir skildu ekki mikið í nafngiftinni á Ljótipolli(d. Grimmevand, e. Uglypit). Sigurður Sverrisson sigraði í bridgemótinu, Aron Þorfinnsson varð annar og Júlíus Sigurjónsson þriðji. Hæsti Daninn náði 6.sæti en Danirnir munu án efa gera betur á næsta ári þegar búnir að venjast spilastíl Íslendinga!
 

Hér má sjá lokastöðuna:

1 Sigurður Sverrisson 86
2 Aron Þorfinnsson 79
3 Júlíus Sigurjónsson 54
4 Rúnar Gunnarsson 33
5 Kjartan Ásmundsson 26
6 Michael Askgaard 24
7 Ómar Olgeirsson 22
8 Gregers Bjarnarson 19
9 Rúnar Magnússon 19
10 Mikkel Larsen 14
11 Frímann Stefánsson 14
12 Þorlákur Jónsson 13
13 Skúli Skúlason 13
14 Þröstur Ingimarsson 12
15 Rúnar Einarsson 1
16 Jóhann Sigurðarson -9
17 Kasper Konow -24
18 Kristinn Þórisson -32
19 Ísak Örn Sigurðsson -34
20 Daníel Már Sigurðsson -36
21 Hlynur Garðarsson -36
22 Páll Þórsson -69
23 Stefán Jónsson -78
24 Ómar Freyr Ómarsson -93

Ýmis aukaverðlaun

Veiðimaður ársins        : Rúnar Gunnarsson
2. sæti í veiði               : Þröstur Ingimarsson
3.sæti í veiði                : Hlynur Garðarsson
Hösslari ársins              : Daníel Már Sigursson (fyrir hösslið árið 2001!!)
Mestu framfarir             : Aron Þorfinsson(2.sæti)
Mesti drykkjuboltinn      : Kjartan Ásmundsson
Nýliði ársins                  : Júlíus Sigurjónsson
Óheppnasti spilarinn      : Kasper Konow (Danmerkur-og Bridgehátíðarmeistari)
Besti hjálparkokkurinn   : Skúli Skúlason(eftir harða keppni frá Stefáni Jónssyni)
Mesta Comebackið        : Gregers Bjarnarson landsliðsmaður Dana(var neðstur með -84 eftir fyrri dag, endaði í +19!)
Bestu tilþrifin                : Daníel Már Sigurðsson(kastaði önglinum út, í sjálfan sig og datt í vatnið!)
Den bedste danske spiller: Michael Askgaard 6.sæti í heildina
Rúnarsverðlaunin          : Rúnar Gunnarsson 4.sæti

Á næsta ári verður bætt við "Gítarleikari ársins" og e.t.v. fleiri verðlaun, hugmyndir vel þegnar.
 

 

6月6日

Nýr Laugavegur

Nú um helgina, 2-3.júní fóru nokkrir galvaskir göngugarpar að Rjúpnavöllum(rétt hjá Galtalæk) og markmiðið var að stika hluta af nýrri gönguleið frá Landmannalaugum að Rjúpnavöllum. Nánar tiltekið var stefnan sett á Valagjá sem er á milli Áfangagils og Landmannahellis. Valagjá minnir á Ljótapoll nema þarna er ekkert vatn! Þó að hópurinn hafi verið fámennari en stefnt var að í byrjun þá komst hópurinn talsvert lengra en upphaflega stóð til eða þangað til stikurnar, um 220 kláruðust! Ekki dugðu þær þó alveg að Landmannahelli en næstum því. Á laugardagskvöldinu var grillaður dýrindis lambahryggur og var yfirkokkurinn á einu sterkasta bridgemóti heims, Landmannahellir Open, fenginn í umsjón með því. Þessu var skolað niður með hóflegu magni af rauðvíni og bjór.
 
Áætluð gönguleið (Verður mælt nánar síðar þegar allar stikurnar komnar niður!)
Landmannalaugar - Landmannahellir   16 km
Landmannahellir - Áfangagil                20 km
Áfangagil - Rjúpnavellir                       17 km
Alls c.a. 50 - 55 km.
 
Þetta er samstarfsverkefni þeirra sem reka gistiskálana á gönguleiðinni:
 
 
Sjá má myndir úr þessari ferð hérna á síðunni
 
 
 
 
 
8月29日

Landmannahellir

Fimmta Bridgehátíð Landmannahellis fór fram um helgina.
Rosa stuð, bridge,veiði, söngur, Landmannalaugar o.fl.
Sigurður Sverrisson vann bridsið og veiðina þetta árið! Kristján Blöndal var drykkjubolti ársins.
 
Það stendur til að skrifa pistil um ferðina, svipað og við gerðum í fyrra og sjá má undir "pistlar" á bridge.is.
5月16日

Myndir

Jæja, var að setja inn nýjar myndir. Ætla að setja sumar myndir hér inn  

Þema sumarsins er útivera